Leikir vetrarins
Skiptum niður umsjónarleikjum þegar nær dregur og fyrir liggur hverjar verða til skiptanna :)
Æfingatímarnir líka uppfærðir.
Helga Hrönn
Hvenær hentar guggum að skemmta sér næst?
Við skulum drífa í þessu fyrir júní annars eru allir komnir eitthvað annað.... Nánar
Það er komið í mig sumar...
Ég vona að allar séu nú búnar að ná sér niður á jörðinna eftir dýrðlegan fögnuð í Vestmannaeyjum. Það er óhætt að segja að guggurnar gerðu afskaplega góða ferð - ég endurtek.... afskaplega góða ferð!
Það var ekki bara að við værum sigursælar á blakvellinum heldur var gleðin allsráðandi í okkar húsi frá morgni og langt, langt fram eftir nóttu...
En áður en of langt líður þá væri gaman að hittast og fara yfir helgina í máli og myndum
Ég vil stinga uppá grilli og gleði með myndasýningu fimmtudaginn 19. maí... það er fullkomlega í boði að stinga uppá annarri dagsetningu - þetta er meira svona til að starta umræðunni og kveikja í einhverjum sem vill æstur bjóða heim ;-) og Alla ljósmyndaragugga nr. 1 þarf líka að vera ready með myndirnar.
Hlakka til að heyra frá ykkur og sjá ykkur - kveð með korni
Uppspilið dásemd og allt hennar múv
svo lipurt og perfekt í leik
Hún leikhléin nýtir og hamast á ljúf
Að launum frá kanti fær sleik
Kveðja kantur númer 7... sem varð svo 17 því hún mjókkaði svo hrikalega á mótinu
PS
Án þess að það hafi verið vísindalega kannað þá held ég að það sé minni stemming en meiri fyrir æfingum í maí og þjálfari vor hefur nú væntanlega í önnur horn að líta þessa dagana með sínum eigin kanti... smá verkefni framundan þar!
ÖLDUNGAMÓT VEY 2011
Utd Guggur verða utan þjónustusvæðis um helgina.
http://www.youtube.com/watch?v=BbP-N4y4KDI
Kjörísmót um helgina
Úr 5. deild eru Ragnheiður, Hrafnhildur og Þórný jákvæðar - Imma á Spáni
Úr 2. deild... Dagga verður ekki í bænum
Aðrar vinsamlegast svarið í athugasemdum!
Æfingaleikur og Fylkismót
Ef við fáum uppa viltu þá tala við Fylki Þórný og bjóða þeim í heimsókn til okkar 20.30 á miðvikudag
FYLKISMÓT á laugardaginn... er ekki bilaður stemmari fyrir því? Ég er amk búin að taka daginn ( og kvöldið ) frá fyrir blak um daginn og svo "fundinn" um kvöldið.
Látið vita í athugasemdum þær sem eru til í mót á laugardaginn. Einnig væri gott að heyra með mætingu á FUNDINN á laugardagskvöldið!
Góðan daginn fögru guggur!
- Nýtt fyrirkomulag á æfingum í april er hér til hliðar. Æfingar verða tvær á viku fyrir hvort lið, ein séræfing og ein sameiginleg eins og Brynjar lagði upp með í pósti. Í apríl verða 3 hraðmót 9. - 16. - 30. apríl og vonandi getum við tekið þátt þar með öldungaliðin okkar.
- Stelpur þið megið gjarnan segja ykkar álit á lokahófsdæminu í könnun hér á síðunni, við ræðum það svo betur þegar fleiri hafa svarað!
- Nýr eyjapistill er væntanlegur í fréttabréfi og Heiða hefur tekið að sér formennsku í Almanaksnefndinn og amk ég bíð spennt eftir fréttum af þema og dagsetningu!
- Hver skráir liðin okkar inn á mótið? Skráningarfrestur rennur út þann 5. apríl...
Eigið annars bara fyrirtakshelgi guggurnar mína
Vey 2011 - þjálfari óskar eftir svari ;-)
| Herjólfur 20.30 miðvikud. 4.maí | Verða ekki allan tímann | |
| Alla - ath með ferð! Ágústa |
Ragnheiður - föstudagskv. | |
| Ásta Sigrún | Birna? | |
| Björg Bylgja |
Guðný - kemur ef vantar | |
| Dagga | ||
| Dunna | ||
| Heiða + bíll | ||
| Hildur | Hafa ekki svarað | |
| Hrafnhildur | Helga Hrönn | |
| Imma | ||
| Kolla | ||
| Linda | ||
| Þóra Matthildur + bíll | Næturgestur | |
| Þórný | Ella kemur sér sjálf á staðinn |
